Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. júlí 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Sherwood ætlar að halda Benteke
Christian Benteke.
Christian Benteke.
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, segist ætla að halda Christian Benteke hjá félaginu.

Liverpool hefur áhuga á Benteke en félagið er ekki tilbúið að borga 32,5 milljónir punda sem er riftunarverðið í samningi leikmannsins.

Sherwood segist heldur ekki vera tilbúinn að hlusta á lægri tilboð í leikmanninn.

„Við viljum halda Christian hér," sagði Sherwood í dag.

„Við viljum halda okkar bestu leikmönnum og Christian er klárlega einn af þeim."
Athugasemdir
banner
banner
banner