Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 08. desember 2016 13:35
Elvar Geir Magnússon
Myndband: The Rock fyrirliði í draumaleik Arons
Mynd: Fótbolti.net/NordicPhotos
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er í skemmtilegu innslagi á heimasíðu félagsliðs síns, Cardiff City.

Þar er hann beðinn um að setja saman sinn draumaleik. Leikurinn er gegn Englandi í París þar sem ítalski dómarinn Pierluigi Collina heldur um flautuna.

Gylfi Þór Sigurðsson er vítaskyttan í draumaleiknum og fyrirliði er sjálfur „The Rock" sem er bandarískur leikari, framleiðandi og glímumaður.

„Ég fylgi honum á samfélagsmiðlum. Hann er góður að hvetja fólk og væri vafalaust góður fyrirliði," segir Aron um The Rock.

Innslagið má sjá hér að neðan en hamborgarhryggur kemur meðal annars við sögu.


Athugasemdir
banner
banner