Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. desember 2016 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Pogba um Mkhitaryan: Við vitum hversu góður hann er
Mkhitaryan skoraði sitt fyrsta mark fyrir Man Utd í gær
Mkhitaryan skoraði sitt fyrsta mark fyrir Man Utd í gær
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, leikmaður Man Utd, segist virkilega ánægður fyrir hönd liðsfélaga síns, Henrikh Mkhitaryan, eftir að hann náði að skora sitt fyrsta mark fyrir rauðu djöflana í gær.

Mkhitaryan var á skotskónum þegar United lagði úkraínska liðið Zorya Luhansk í Evrópudeildinni í gær og Pogba var mjög ánægður með frammistöðuna hjá honum.

„Við þekkjum hann allir," sagði Pogba við sjónvarpsstöð Man Utd. „Við æfum með honum á hverjum einasta degi."

„Við vitum hversu góður hann er. Þú verður bara að hafa sjálfstraust og nú er hann farinn að spila meira, hann er kominn með fleiri leiki á bakið."

„Við verðum að hafa hann í liðinu, eins og við verðum að hafa alla í liðinu, en frammistaðan hjá Mhki í gær var hreint út sagt ótrúleg," sagði Pogba að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner