Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2016 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Alfreð og félagar mæta Bayern
Geta Alfreð og félagar stöðvað Bayern-vélina?
Geta Alfreð og félagar stöðvað Bayern-vélina?
Mynd: Getty Images
21. umferð þýska boltans verður spiluð um helgina og verður einn leikur sýndur í beinni útsendingu hér á landi.

Það verður lokaleikur helgarinnar, þar sem Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg fá toppliðið og stórmeistarana í Bayern München í heimsókn.

Mainz og Schalke koma helginni af stað með viðureign sinni í evrópubaráttunni í kvöld.

Borussia Dortmund mætir Hannover á laugardaginn, Hertha Berlin heimsækir Stuttgart sem er búið að vinna fjóra í röð og Bayer Leverkusen á útileik gegn nýliðum Darmstadt.

Wolfsburg fær Ingolstadt í heimsókn og Werder Bremen mætir Hoffenheim áður en Köln og Eintracht Frankfurt hefja síðasta leik laugardagsins.

Hamburger SV mætir svo Borussia Mönchengladbach á sunnudaginn í leik sem byrjar tveimur tímum fyrir upphafsflautið hjá Augsburg og Bayern.

Föstudagur:
19:30 Mainz - Schalke

Laugardagur:
14:30 B. Dortmund - Hannover
14:30 Darmstadt - Bayer Leverkusen
14:30 Stuttgart - Hertha Berlin
14:30 Wolfsburg - Ingolstadt
14:30 Werder Bremen - Hoffenheim
17:30 Köln - Eintracht Frankfurt

Sunnudagur:
14:30 Hamburger SV - B. Mönchengladbach
16:30 Augsburg - Bayern München (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner