Franski miðjumaðurinn N´Golo Kante ber greinilega sterkar taugar til Leicester þrátt fyrir að hafa yfirgefið félagið fyrir Chelsea síðastliðið sumar.
Kante skaut Man Utd út úr enska bikarnum í gærkvöldi og var svo mættur sem áhorfandi á King Power leikvanginn í kvöld.
Þar sá hann Leicester slá Sevilla út úr Meistaradeild Evrópu en Kante var lykilmaður hjá Englandsmeisturum Leicester á síðustu leiktíð.
Eins og myndirnar hér að neðan bera með sér var Kante greinilega hæstánægður með sína gömlu félaga.
Try taking that smile of @nglkante's face... 😄👏 pic.twitter.com/oibyNbhnUi
— BT Sport Football (@btsportfootball) March 14, 2017
Athugasemdir