Miðjumaðurinn Davíð Þór Viðarsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH og gildir samningurinn út tímabilið 2019.
Davíð er 33 ára og er fyrirliði FH-inga. Hann er uppalinn hjá félaginu.
Davíð er 33 ára og er fyrirliði FH-inga. Hann er uppalinn hjá félaginu.
Davíð hefur sjö sinnum Íslandsmeistari með FH; 2004, 2005. 2006, 2008, 2009, 2015 og 2016.
Þá hefur hann leikið sem atvinnumaður í Noregi, Svíþjóð og Danmörku auk þess sem hann var í stuttan tíma hjá Lokeren í Belgíu. Hann á níu A-landsleiki.
FH hafnaði í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar á liðnu tímabili en talsverðar breytingar urðu í Krikanum í kjölfarið.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH sem gildir út tímabilið 2019. Þetta eru sannarlega gleðifréttir fyrir okkur FH-inga 👑👏🔝. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/7bPlG2sDuV
— FHingar.net (@fhingar) December 15, 2017
Athugasemdir