Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   sun 16. nóvember 2014 23:01
Brynjar Ingi Erluson
Emmi Hall: Enginn sem náði sér almennilega á strik í kvöld
Icelandair
Emil Hallfreðsson í leiknum í kvöld.
Emil Hallfreðsson í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var vonsvikinn með frammistöðu liðsins er það tapaði fyrir Tékklandi í kvöld.

Lestu um leikinn: Tékkland 2 -  1 Ísland

Ísland tapaði fyrir Tékklandi með tveimur mörkum gegn einu en þetta var fyrsta tap Íslands í undankeppninni.

Emil átti ekki sinn besta dag í dag eins og margir aðrir leikmenn íslenska liðsins en hann átti erfitt með að útskýra ástæðuna fyrir slakri frammistöðu liðsins.

,,Ég held að við megum vera það. Þetta var engan vegin nógu gott og mjög leiðinlegt að þetta fór eins og það fór," sagði Emil.

,,Ég veit það ekki nákvæmlega. Við vorum ekki jafn klárir í verkefnið og við héldum að við værum."

,,Ég var ekki nógu góður í dag og held ég nánast eins og allt liðið því miður. Það var enginn sem náði sér á strik í dag, því miður."

,,Það er alveg rétt hjá þér. Það sýnir kannski hvað fótboltinn er skrýtinn, þrátt fyrir að vera frekar slakir þá vorum við alltaf inni í þessum leik en eftirá er þetta hundfúlt og engar útskýringar af hverju við vorum svona slakir í dag."

,,Á síðustu mínútu í fyrri hálfleik er alltaf eitthvað mental dæmi. Hitt er mjög klaufalegt líka en því miður var þetta ekki okkar dagur í dag,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner