Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mán 17. apríl 2017 19:12
Magnús Már Einarsson
Warnock: Aron þrumar vanalega niður dúfur með svona skotum
Aron fagnar markinu í dag.
Aron fagnar markinu í dag.
Mynd: Getty Images
Neil Warnock, stjóri Cardiff, grínaðist í Aroni Einari Gunnarssyni eftir sigurmark Íslendingsins gegn Nottingham Forest í dag.

Aron skoraði með viðstöðulausu þrumuskoti af 25 metra færi og tryggði Cardiff 1-0 sigur.

„Hann þrumar vanalega niður dúfurnar ofan á stúkunni þegar hann á svona skot," grínaðist Warnock.

„Markvörðurinn átti ekki séns. Þetta var þrumuskot og það var gaman að sjá fögnuðinn hjá honum. Hann er frábær strákur og mikilvægur hluti af hópnum."

Aron hefur verið öflugur í liði Cardiff á tímabilinu og hann var ánægður með markið. „Ég beið eftir að boltinn myndi detta fyrir mig og ég reyndi að hitta hann eins fast og ég gat," sagði Aron.
Athugasemdir
banner
banner
banner