Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 17. nóvember 2015 22:23
Magnús Már Einarsson
Zilina
Kolbeinn: Okkur er ekki ætlað að vinna æfingaleiki
LG
Borgun
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er steikt, okkur er ekki ætlað að vinna þessa æfingaleiki, það er bara þannig," sagði Kolbeinn Sigþórsson eftir 3-1 tap Íslands í Slóvakíu í kvöld en liðið leiddi 1-0 í hálfleik.

Lestu um leikinn: Slóvakía U21 3 -  1 Ísland

„Frábær fyrri hálfleikur, við vorum með leikinn undir control í seinni hálfleik en fáum svo á okkur þrjú mörk sem voru ansi ódýr."

Kolbeinn lék í framlínunni með Alfreð Finnbogasyni sem skoraði mark Íslands og samvinna þeirra gekk vel í dag.

„Já, bara frábært. Við höfðum marga möguleika frammi og Alfreð stóð sig vel í dag. Það er gott að hafa stóran hóp sem allir geta komið inn og gert gott."

Þegar Slóvenar jöfnuðu metin eftir klaufaskap í vörn Íslands datt leikurinn niður hjá íslenska liðinu.

„Við missum dampinn í leiknum, kannski gerist það í æfingaleikjum því það er minna undir þá, að menn gefa aðeins meira eftir. Við höfum ekki verið að ná úrslitum í æfingaleikjunum, sem betur fer gengur betur í alvöru leikjunum og það er aðal málið."

„Það jákvæða við þetta allt saman er að við erum að fá inn nýja leikmenn sem eru að standa sig mjög vel. Mér fannst Sverrir Ingi standa sig mjög vel í dag. Það er gott að vera með menn sem geta komið inn og fyllt skarðið ef einhverjir detta út. Í rauninni er þetta góð ferð þó við höfum tapað tveimur leikjum. Það hefur sýnt sig áður að við höfum tapað en við höfum komið sterkir til baka og unnið þessa mikilvægu leiki."

Athugasemdir
banner
banner
banner