Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 18. desember 2017 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Benteke: Fyrir viku bölvuðu þeir mér - Núna elska þeir mig
Mynd: Getty Images
Christian Benteke átti frábæran leik er Crystal Palace hafði betur gegn Leicester City um helgina.

Benteke skoraði og lagði upp í leiknum en hann hefur verið gagnrýndur á tímabilinu fyrir slakar frammistöður. Þetta var fyrsta mark Belgans á tímabilinu.

Benteke fékk mikla athygli eftir að hann klúðraði tveimur stigum í 2-2 jafntefli gegn Bournemouth. Palace fékk vítaspyrnu í uppbótartíma og ákvað sóknarmaðurinn sterki að taka spyrnuna þó það væri ekki í hans verkahring. Benteke klúðraði.

„Ég skammaðist mín aldrei fyrir ákvörðun mína. Ég faldi mig ekki og axlaði ábyrgðina. Ég vissi alltaf að ég myndi skora fyrr eða síðar," sagði Benteke

„Ég er búinn að leggja allt á mig fyrir liðið og núna fékk ég loksins það sem ég átti skilið, svona er fótboltinn.

„Í síðustu viku voru stuðningsmenn að bölva mér og hlæja að mér en núna elska þeir mig. Þetta hvetur mig til að gefast aldrei upp og treysta ekki á aðra, ég þarf að treysta á sjálfan mig."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner