Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. febrúar 2017 21:44
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Spánn: Barcelona með dramatískan sigur
Messi tryggði Barcelona dramatískan sigur
Messi tryggði Barcelona dramatískan sigur
Mynd: Getty Images
Barcelona 2 - 1 Leganes
1-0 Lionel Andres Messi ('4 )
1-1 Unai Lopez ('71 )
2-1 Lionel Andres Messi ('89 , víti)

Síðasti leikur dagsins í spænsku úrvalsdeildinni var viðureign Barcelona og Leganes á Nou Camp.

Lionel Messi kom Börsungum yfir snemma leiks og var það eina mark fyrri hálfleiks.

Gestirnir í Leganes jöfnuðu leikinn á 71. mínútu þegar Unai Lopez skoraði.

Þegar allt stefndi í jafntefli þá fengu Barcelona vítaspyrnu en brotið var á Neymar. Úr henni skoraði Lionel Messi.

Leganes voru nálægt því að jafna leikinn í viðbótartíma, en inn vildi boltinn ekki. 2-1 sigur Barcelona því staðreynd.

Barcelona er nú einu stigi á eftir toppliði Real Madrid en Real Madrid á tvo leiki til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner