Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 19. ágúst 2017 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Þetta var erfiðisvinna
Mynd: Getty Images
„Þetta var erfiðisvinna," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 1-0 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var fyrsti sigur Liverpool á tímabilinu, en þeir gerðu jafntefli við Watford í fyrsta leik sínum. Klopp var ánægður að fá sigur.

„Ég hef ekki hugmynd um það hversu mikið við héldum boltanum, en það er einhver stór tala. Við fengum nokkur góð augnablik í fyrri hálfleiknum, en við þurftum að sýna þolinmæði þar sem þeir vörðust mjög aftarlega," sagði Klopp.

„Við gerðum betur í seinni hálfleiknum, fyrri hlutinn var sérstaklega góður. Við vorum vakandi og vörðumst vel og ég elskaði markið sem við skoruðum í dag. Það kom upp úr góðri pressu."

„Við fengum önnur færi, en ég er fullkomlega sáttur með það hvernig við sinntum vinnu okkar í dag."

„Það hjálpar okkur að spila á Anfield."
Athugasemdir
banner
banner