Keflavík vann 2-1 sigur gegn Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu í kvöld en Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði sigurmarkið í lok leiksins. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með að taka þrjú stig eftir að hafa gert jafntefli í hinum tveimur leikjum mótsins.
„Frá okkar hendi séð þá vorum við afskaplega daufir í byrjun. Svo gírum við okkur upp í hálfleiknum og vorum miklu ákveðnari," sagði Kristján.
Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Árni Antoníusson léku báðir með í kvöld en þessir reynslumiklu menn eru komnir aftur í Keflavíkurbúninginn.
„Þeir eru að venjast því að vera komnir aftur til baka. Þetta kemur allt. Við erum enn að leita eftir því hvernig við ætlum að stilla upp liðinu. Þetta er ekki alveg komið."
Hollenskur markvörður, Richard Arends, spilaði með Keflavík í kvöld. Hann er hjá félaginu á reynslu en Kristján segir ekki ákveðið hvort samið verði við hann.
„Hann er mjög flottur strákur. Það er samt ekkert ákveðið, hann verður hjá okkur í tvo daga í viðbót og svo skoðum við þetta," sagði Kristján en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þar tjáir hann sig meðal annars um leikmannamál.
Athugasemdir