Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. apríl 2014 15:12
Daníel Freyr Jónsson
Danmörk: Ari Freyr í tapliði OB
Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestsjælland og OB mættust í dönsku deildinni í dag þar sem heimamenn í Vestsjælland höfðu 1-0 sigur.

Dennis Höegh gerði eina markið snemma í síðari hálfleik, en sigurinn var afar dýrmætur fyrir Vestsjælland þar sem liðið er í mikilli fallbaráttu.

Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar hjá OB og nældi sér ú gult spjald um miðjan síðari hálfleik.

OB er um miðja deild, situr í sjöunda sæti og hefur 34 stig þegar 28 umferðum af 33 er lokið.
Athugasemdir
banner
banner