Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. ágúst 2014 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Simeone: Di Maria er besti leikmaður Real Madrid
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid á Spáni, segir að Angel Di Maria hjá Real Madrid sé besti leikmaður liðsins.

Di Maria byrjaði á tréverkinu er Real Madrid og Atletico Madrid mættust í fyrri leik liðanna í Ofurbikar Evrópu í gær en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Argentínski kantmaðurinn kom inná þegar tólf mínútur voru eftir en leikurinn breyttist eftir komu hans á völlinn. Hann átti þátt í markinu sem James Rodriguez skoraði en Raul Garcai jafnaði stuttu síðar fyrir Atletico.

Simeone er á því að DI Maria sé besti leikmaður Madrídinga en argentínski leikmaðurinn er sagður á leið frá Real Madrid og hafa lið á borð við Manchester United og Paris Saint-Germain haft samband við umboðsmann hans.

,,Leikurinn breyttist þegar Di Maria kom inná. Það er mjög eðlilegt þar sem hann er besti leikmaður liðsins," sagði Di Maria.

,,Hann er líklegasti leikmaðurinn til þess að opna pláss á vallarhelming andstæðingana," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner