„Það er erfitt að tapa þessum leik," sagði Ben Davies, bakvörður Tottenham eftir 2-1 tap gegn Chelsea í dag.
„Við sköpuðum fín færi, en á endanum er það ekki nóg."
„Við sköpuðum fín færi, en á endanum er það ekki nóg."
„Markmiðið hjá þeim var að gera okkur erfitt fyrir. Þeim tókst það, en þeir sköpuðu ekki mikla hættu, að mér fannst."
Tottenham mun spila á Wembley á þessu tímabili þar sem nýr völlur liðsins er í byggingu. Mikið hefur verið talað um það fyrir tímabilið að Wembley komi til með að skemma fyrir Tottenham, en liðið tapaði sínum fyrsta leik á vellinum á þessu tímabili í dag.
„Þetta tap hefur ekkert með völlinn að gera. Við spiluðum vel í dag og á öðrum degi hefðum við getað unnið."
Athugasemdir