ÍBV hafði betur gegn ÍA í fallslag í Pepsi-deild karla í dag.
Bæði lið eru í harðri fallbaráttu og það var mikið undir á Skaganum í dag; sannkallaður sex stiga leikur!
Bæði lið fengu tækifæri til að koma boltanum í netið í fyrri hálfleiknum, en það voru gestirnir úr Eyjum sem gerðu það. Eftir langt innkast átti Matt Garner fyrirgjöf sem endaði á kollinum á miðverðinum stóra og stæðilega, Brian McLean, sem skoraði fyrsta mark leiksins. Árni í marki ÍA átti að gera miklu betur!
Þessi mistök Árna áttu eftir að reynast dýrkeypt. ÍA náði ekki að jafna þrátt fyrir ágætis tilraunir í seinni hálfleiknum.
Lokatölur 1-0 fyrir bikarmeisturum ÍBV sem fara núna í 16 stig, rétt eins og Fjölnir. Útlitið er ekki gott fyrir ÍA sem er á botni deildarinnar með aðeins 10 stig. Þeir stefna hratt niður í Inkasso.
Athugasemdir