Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. desember 2014 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Berlusconi segir Milan með sterkara lið en Roma
Mynd: Getty Images
Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan á Ítalíu, segir að félagið sé sterkari en Roma en liðin mætast í kvöld.

Milan er í sjöunda sæti deildarinnar, ellefu stigum á eftir Roma sem er í öðru sæti deildarinnar.

Berlusconi er þó á því máli að Milan sé betra lið en Roma en það kemur allt saman í ljós í kvöld.

,,Þessi leikur er mikilvægur. Við verðum að fara inn á völlinn með því hugarfari að við séum betra lið en Roma. Ég myndi tildæmis aldrei skipta út hópnum mínum fyrir þeirra," sagði Berlusconi.
Athugasemdir
banner
banner
banner