Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 21. ágúst 2014 13:15
Arnar Daði Arnarsson
Sara Björk: Vonandi bjóðum við upp á markasúpu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mætir Dönum í undankeppni HM í kvöld á Laugardalsvelli. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir báðar þjóðir en Ísland þarf níu stig í síðustu þremur leikjum sínum í riðlinum, ætli það sér að eiga möguleika að ná í umspil.

Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði landsliðsins er spennt fyrir leiknum í kvöld og býst við erfiðum leik.

,,Þetta er mjög gott lið sem við erum að fara mæta. Við náðum fínum úrslitum gegn þeim í fyrri umferðinni þó við hefðum viljað fá þrjú stig. Þetta er sterkt lið og við þurfum að eiga toppleik," sagði fyrirliðinn, sem segir ekkert annað koma til greina í kvöld nema þrjú stig.

Hér má sjá rafræna leikskrá fyrir þennan leik

,,Til að komast í umspil þurfum við að vinna þennan leik. Við þurfum að klára alla þessa leiki sem eru framundan og við byrjum gegn Dönum. Við þurfum að taka það sem við gerðum vel í fyrri leiknum. Við settum góða hápressu á þær og fengum færi. Við nýttum þau reyndar ekki nægilega vel það er eitthvað sem við getum gert betur í leiknum í kvöld."

Sara Björk vonast til að sjá sem flesta á vellinum í kvöld og njóti þess að horfa á flottan fótboltaleik.

,,Vonandi bjóðum við upp á markasúpu," sagði Sara Björk að lokum.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner