Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. október 2014 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Thorsport.is 
Katrín Ásbjörnsdóttir á leið til Noregs
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Katrín Ásbjörnsdóttir hefur verið sóknarmaður Þórs/KA síðustu þrjú tímabil en hefur ákveðið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku utan Íslands.

Katrín var alin upp hjá KR en fór til Akureyrar árið 2011 og varð Íslandsmeistari með félaginu ári síðar.

Katrín, sem er aðeins 22 ára, hefur skorað 26 mörk í 48 leikjum fyrir Þór/KA og vakið áhuga á sér í Noregi.

Hún stefnir á að flytja til Noregs eftir áramót en ætlar að gera sér ferð til að kanna aðstæður í desember. Ekki er tekið fram hvaða félag hefur áhuga á Katrínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner