Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. apríl 2018 21:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Levante að senda Deportivo aftur niður
Mynd: Getty Images
Athletic Bilbao 1 - 3 Levante
1-0 Raul Garcia ('8)
1-1 Enis Bardhi ('42)
1-2 Enis Bardhi ('44)
1-3 Jose Morales ('90)

Deportivo La Coruna er svo gott sem fallið eftir frábæran sigur Levante á Athletic Bilbao í spænska boltanum í kvöld.

Raul Garcia kom Bilbao yfir snemma leiks en Enis Bardhi sneri stöðunni við á lokamínútum fyrri hálfleiks.

Bæði lið fengu færi til að bæta við í opnum og skemmtilegum leik en Jose Morales innsiglaði sigur gestanna undir lokin.

Deportivo er núna níu stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner