Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. apríl 2018 13:54
Elvar Geir Magnússon
Lukkudósin Peppi snýr aftur í sumar
Peppi er vel peppaður fyrir deildinni.
Peppi er vel peppaður fyrir deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á sérstökum kynningarfundi fyrir Pepsi-deildina sem haldinn var í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar í dag var tilkynnt um endurkomu lukkudósarinnar Peppa í deildina.

Ekkert hefur heyrst í Peppa í langan tíma en hann var fyrst kynntur til leiks á árdögum Pepsi-deildarinnar. Hann hvarf svo af sjónarsviðinu en mætir aftur til leiks, galvaskur, í sumar.

Í sérstöku myndbandi (sem sjá má hér fyrir neðan) var endurkoma Peppa staðfest á fundinum í dag.

Við þetta tilefni er um að gera að rifja það upp þegar Atli Sveinn Þórarinsson fékk þá áskorun að bregða sér í hlutverk Peppa árið 2011.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner