Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. júní 2016 10:05
Jóhann Ingi Hafþórsson
Annecy
Heimild: Vísir 
KSÍ ætlar sér að bjóða Tólfunni á leikinn gegn Englandi
Icelandair
Stuðningsmenn Íslands hafa verið magnaðir í Frakklandi.
Stuðningsmenn Íslands hafa verið magnaðir í Frakklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ ætlar sér að bjóða einhverjum stuðningsmönnum til Nice á leikinn gegn Englandi en Vísir greinir frá þessu.

Margir af hörðustu stuðningsmönnum íslenska liðsins eru farnir heim þar sem var um féskort að ræða.

Einnig var mikil óánægja um hversu fáa miða íslenskir stuðningsmenn fengu á leikinn og segist Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, ætla að reyna gera sitt til að fá fleiri stuðningsmenn út.

„Það eru flöskuhálsar í þessu sem eru hreinlega miðamál. Það eru flugsæti og annað slíkt sem þarf að leysa. Það eru aldrei nema tíu trommarar eða eitthvað slíkt. Ég vona að engin byrji að pakka strax. En það væri gaman að fá einhverja sem geta leitt fjöldastöng í stúkunni,“ sagði Klara í samtali við Vísi.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner