Kópavogsvöllur er vinsælasti völlurinn á fyrri helmingi Pepsi-deildarinnar ef litið er á áhorfendatölur úr fyrstu 11 umferðunum.
Að meðaltali koma 1565 áhorfendur á heimaleiki Breiðabliks en á eftir þeim koma KR með 1368 og FH með 1269.
Flestir áhorfendur komu á viðureign Breiðabliks og FH 5. júní síðastliðinn eða 1936. Næst flestir voru á leik Stjörnunnar og FH 23. maí en þá komu 1931 áhorfendur.
Fæstir komu hinsvegar á leik Víkings Ólafsvík og Þróttar 28. júní eða aðeins 260 áhorfendur.
Ólafsvíkingarnir fá fæsta áhorfendur á sinn heimavöll eða 573 að meðaltali.
Meðal áhorfendur í umferðum 1-11
1. Breiðablik - 1565
2. KR - 1368
3. FH - 1269
4. Stjarnan - 1220
5. Fylkir - 1220
6. Víkingur Reykjavík - 990
7. Valur - 970
8. Þróttur - 950
9. Fjölnir - 911
10. ÍA - 832
11. ÍBV - 743
12. Víkingur Ólafsvík - 573
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir