Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. nóvember 2015 12:00
Magnús Már Einarsson
Di Maria hrekktur á Facebook - Sagði Ronaldo á leiðinni
Færslan sem birtist á Facebook síðu Di Maria í gær.
Færslan sem birtist á Facebook síðu Di Maria í gær.
Mynd: Twitter
Í gærkvöldi var birtur áhugaverður póstur á opinberri Facebook síðu Angel Di Maria, leikmanns PSG.

Þar var gefið í skyn að Cristiano Ronaldo sé á leið til PSG.

„Fljótlega vinur minn. Cristiano Ronaldo," stóð í færslunni og með henni var mynd af Di Maria og Ronaldo í leik með Real Madrid.

Di Maria neitar því að vera á bakvið Facebook síðuna þrátt fyrir að hún hafi verið merkt sem opinber síða hans.

Búið er að eyða Facebook síðunni og eiginkona Di Maria er ekki sátt með færsluna.

„Angel notar EKKI Facbook og hann notar EKKI Twitter," sagði eiginkona Di Maria um málið á Instagram síðu sinni.

Margt bendir því til þess að óprúttnir aðilar hafi verið að verki með Facebook síðuna og færsluna þar í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner