Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
   lau 25. febrúar 2017 18:25
Elvar Geir Magnússon
Milos: Strákarnir vildu fara til Serbíu
Milos segist ekki hafa verið brjálaður í klefanum í hálfleik.
Milos segist ekki hafa verið brjálaður í klefanum í hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Reykjavík sýndi tvær hliðar á sér í dag gegn Íslandsmeisturum FH í Lengjubikarnum. Tveimur mörkum undir í hálfleik spýttu Víkingar í lófana í seinni hálfleik en það dugði þó ekki til að fá stig, 2-1 sigur FH staðreynd.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  2 FH

„Ég vona að spilamennskan í fyrri hálfleik muni ekki endurtaka sig. Við fengum tvö klaufaleg mörk á okkur og það hefur auðvitað áhrif á sjálfstraustið en menn mega ekki gleyma því sem þeir gerðu í síðasta leik og hafa gert á æfingum," sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkinga, eftir leikinn.

Hann segist ekki hafa látið menn heyra það í hálfleiknum en var sáttur með svarið frá leikmönnum í seinni hálfleik.

„Ég var ekki ljúfur en heldur ekki brjálaður," sagði Milos.

Meðan flest lið Íslands fara æfingaferð til Spánar munu Víkingar fara til Serbíu, heimalands Milosar.

„Ég þekki þetta svæði en þetta var ósk frá strákunum. Þeim fannst þetta tækifæri til að fara með mér til Serbíu. Þeir vildu prófa eitthvað nýtt. Svo fengum við mjög hagstætt verð. Við verðum meðal annars á æfingasvæði sem knattspyrnusamband Serbíu á og var byggt nýlega. Þetta lítur mjög vel út," sagði Milos sem hefur lofað leikmönnum að sýna þeim næturlífið í Serbíu eitt kvöld eins og fram kemur í viðtalinu hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner