Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. apríl 2015 17:56
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Þriðja tvenna Griezmann í röð
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 3 - 0 Elche
1-0 Antoine Griezmann ('55 )
2-0 Raul Garcia ('63 )
3-0 Antoine Griezmann ('77 )

Spánarmeistarar Atletico Madrid fengu Elche í heimsókn í La Liga í dag og vonuðust til að hrista af sér vonbrigði vikunnar í Meistaradeildinni þar sem liðið datt út gegn erkifjendunum í Real Madrid á dramatískan hátt.

Það tók heimamenn tíma að brjóta niður varnarmúr Elche en eftir 55 mínútur brást stíflan þegar hinn sjóðheiti Antoine Griezmann skoraði.

Raul Garcia tvöfaldaði forystuna nokkrum mínútum síðar og Griezmann gerði svo út um leikinn á 77.mínútu.

Þetta er þriðji deildarleikurinn í röð sem Frakkinn skorar tvö mörk en hann er búinn að skora 20 deildarmörk fyrir Atletico í vetur.
Athugasemdir
banner
banner