Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. maí 2017 21:23
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Inkasso: Keflavík og Selfoss skildu jöfn
Hólmar Örn tryggði Keflvíkingum stigið
Hólmar Örn tryggði Keflvíkingum stigið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 2 - 2 Selfoss
0-1 Ingi Rafn Ingibergsson ('50)
1-1 Juraj Grizelj ('52)
1-2 James Mack ('63)
2-2 Hólmar Örn Rúnarsson ('66)

Keflavík fékk Selfoss í heimsókn í fjórðu umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld.

Eftir rólegan fyrri hálfleik voru það Selfyssingar sem komu sterkari til leiks í þeim síðari.

Ingi Rafn Ingibergsson skoraði strax á 50. mínútu en Keflvíkingar svöruðu tveimur mínútum síðar. Þá skoraði Juraj Grizelj.

Selfoss komst aftur yfir á 63. mínútu en þá skoraði James Mack. Aftur voru Keflvíkingar fljótir að svara því þremur mínútum síðar jafnaði Hólmar Örn Rúnarsson leikinn.

Ekki urðu mörkin fleiri og skildu liðin jöfn, 2-2.

Selfyssingar setjast í toppsætið ásamt Fylki með sjö stig en Keflavík er í þriðja sæti deildarinnar með sex stig.
Athugasemdir
banner