Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 25. maí 2018 21:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Inkasso-kvenna: Þróttur R. og Keflavík skildu jöfn
Mynd: Auður Erla Guðmundsdóttir
Þróttur R. 2-2 Keflavík
0-1 Natasha Moraa Anasi ('6)
1-1 Gabriela Maria Mencotti ('28)
2-1 Gabriela Maria Mencotti ('43)
2-2 Natasha Moraa Anasi ('52)

Einn leikur fór fram í Inkasso deild kvenna í kvöld þar sem Þróttur R. og Keflavík mættust á Eimskipsvellinum.

Þar voru fjögur mörk skoruð og gestirnir frá Keflavík skoruðu fyrsta markið en þær komust yfir á 6. mínútu þá skoraði Natasha Moraa Anasi. Gabriela Maria Mencotti jafnaði fyrir heimakonur á 28. mínútu.

Gabriela skoraði svo annað markið sitt undir lok fyrri hálfleiks og Þróttur var með 2-1 forystu í hálfleik. Keflavík jafnaði svo metin í upphafi síðari hálfleiks og það reyndist síðasta markið sem skorað var í leiknum en þá skoraði Natasha Moraa Anasi annað markið sitt.

Þróttur R. er í 4. sæti Inkasso deildarinnar með 4 stig en Keflavík er hins vegar á toppnum með 7 stig en þetta var fyrsti leikur 3. umferðar.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner