Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. apríl 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikur: Blikar með sigur í Reykjaneshöllinni
Agla María skoraði fyrir Blika.
Agla María skoraði fyrir Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 1 - 3 Breiðablik
Mörk Blika: Agla María Albertsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Mark Keflavíkur: Katla María Þórðardóttir

Breiðablik hafði betur gegn Keflavík í æfingaleik sem fram fór Reykjaneshöllinni í gærkvöldi.

Landsliðskonan Agla María Albertsdóttir kom Blikum yfir með glæsilegu marki áður en Keflavík jafnaði með marki frá Kötlu Maríu Þórðardóttur. Mörk frá Berglindu Björg Þorvaldsdóttur og Alexöndru Jóhannsdóttur sáu þó til þess að sigurinn endaði hjá Kópavogsliðinu.

Blikar eru líkegir til afreka í Pepsi-deildinni á meðan Keflavík ætlar sér upp úr 1. deildinni í sumar.

Breiðablik varð í gær Faxaflóameistari.

Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Toyota opnuð - Skráðu þitt lið!



Athugasemdir
banner
banner