West Ham hefur gengið frá kaupum á svissneska miðjumanninum Edimilson Fernandes frá Sion en kaupverðið var ekki gefið upp.
Hinn tvítugi Fernandes var kynntur sem leikmaður West Ham fyrir leik liðsins gegn rúmenska liðinu Asta Giurgiu í Evrópudeildinni í gær.
Fernandes er frændi fyrrum leikmanns Manchester City og Leicester, Gelson Fernandes en hann er níundi leikmaðurinn sem West Ham fær til sín í sumar.
Hann hefur spilað 48 leiki fyrir Sion og skorað í þeim tvö mörk.
Athugasemdir