Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. október 2016 17:09
Magnús Már Einarsson
U17 kvenna ekki í vandræðum með Hvíta-Rússland
Sveindís Jane skoraði tvö.
Sveindís Jane skoraði tvö.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland 4 - 0 Hvíta-Rússland
1-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('11)
2-0 Hlín Eiríksdóttir ('26)
3-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('32)
4-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('49)

U17 landslið kvenna byrjaði undankeppni EM á mjög sannfærandi hátt í dag með 4-0 sigri á Hvíta-Rússlandi í Cork á Írlandi. Staðan í leikhléi var 3-0.

Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Keflavíkur skoraði fyrsta og síðasta markið.

Hlín Eiríksdóttir úr Val og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoruðu báðar eitt mark.

Mjög sannfærandi byrjun hjá íslenska liðinu en næsti leikur er gegn Færeyjum á föstudag. Tvær efstu þjóðirnar komast áfram í milliriðla en síðasti leikur Íslands verður gegn gestgjöfunum frá Írlandi á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner