Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. maí 2016 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Alexis og Ramsey fá ný treyjunúmer - Xhaka númer 16
Mynd: Getty Images
Granit Xhaka, nýr leikmaður Arsenal, mun klæðast treyju númer 16 á komandi tímabili.

Treyjuna fær hann frá Aaron Ramsey, sem fær treyju númer 8 frá spænska miðjumanninum Mikel Arteta.

Alexis Sanchez tekur þá við treyju númer 7 af Tomas Rosicky, en hingað til hefur Sanchez verið númer 17.

Undirbúningstímabil Arsenal hefst í júlí og fer liðið til Bandaríkjanna undir lok mánaðarins. Þar fer liðið til Kalíforníu og mætir Stjörnuliði MLS deildarinnar 28. júlí og Chivas 31. júlí.






Athugasemdir
banner
banner
banner