Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   lau 27. júní 2015 16:54
Valur Gunnarsson
Jón Gísli Ström: Maggi betri en David James
Jón Gísli Ström skoraði bæði mörk ÍR í leiknum
Jón Gísli Ström skoraði bæði mörk ÍR í leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Það var mjög sætt að stela þessu í lokin og vinna frábært lið Leiknis.“ sagði Jón Gísli Ström leikmaður ÍR eftir sigur sinna mann í toppslag 2. deildar fyrr í dag.

ÍR vann 2-1 sigur gegn Leikni Fáskrúðsfirði.

Jón Gísli skoraði bæði mörk leiksins. Það fyrra kom eftir að hann náði boltanum af Bergsteini markmanni Leiknis og það seinna kom þegar rúmar 5 mínútur voru eftir en þá fékk hann langan bolta innfyrir frá leikmanni Leiknis sem hitti ekki boltann á vallarhelmingi ÍR-inga.

„Þetta voru mjög steikt mörk en mörk eru mörk og þau telja.“

Þegar tæpar 5 mínútr lifði leiks fengu Leiknismenn vítaspyrnu. Jóni fannst vera brotið á sér í aðdraganda hennar.

„Ég er í baráttu á miðjunni við einn strákinn í þeirra liði og hann setur höndina í höfuðið á mér. Hann flautar ekki og þeir fá víti. En við erum með frábæran markmann. Þetta er besti markmaður sem ég hef æft með og ég hef æft með David James," segir Jón Gísli um markvörðinn Magnús Þór Magnússon sem hefur verið frábær hjá ÍR.

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner