Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. ágúst 2014 10:36
Magnús Már Einarsson
Arnar Grétars hættir hjá Club Brugge
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Arnar Grétarsson mun hætta störfum hjá belgíska félaginu Club Brugge um mánaðarmótin en Het Nieuwsblad greinir frá þessu í dag.

Arnar var ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá Club Brugge í lok árs 2012 eftir að hafa áður verið í svipuðu starfi hjá AEK Aþenu í Grikklandi.

Michel Preud'homme þjálfari Club Brugge og Vincent Mannaert framkvæmdastjóri félagsins hafa stærra starfssvið en áður og því er Arnar á förum frá félaginu.

Arnar spilaði lengi með Lokeren í Belgíu á sínum tíma en hann lagði skóna á hilluna árið 2009 eftir að hafa leikið í nokkur ár með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki.
Athugasemdir
banner
banner
banner