Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 28. mars 2017 17:23
Elvar Geir Magnússon
Dublin, Írlandi
Byrjunarlið Íslands: Aron Sigurðar á kantinum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net
Byrjunarlið Íslands sem mætir Írlandi hefur verið opinberað. Þrír úr byrjunarliðinu gegn Kosóvó byrja leikinn á Aviva leikvanginum í Dublin. Það eru Birkir Már Sævarsson, Ragnar Sigurðsson og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson. Leikurinn hefst 18:45 að íslenskum tíma.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Ögmundur Kristinsson er í markinu, Sverrir Ingi Ingason sem leikið hefur vel með Granada á Spáni er við hlið Ragnars. Skipt er um vinstri bakvörð, Hörður Björgvin Magnússon kemur inn.

Ólafur Ingi Skúlason er við hlið Arons Einars Gunnarssonar fyrirliða á miðjunni.

Á köntunum eru Rúrik Gíslason og Aron Sigurðarson. Aron er að spila sinn fimmta A-landsleik en hann er með 2 mörk í 4 leikjum. Hann skoraði bæði gegn Bandaríkjunum og Kína í fyrra.

Þá er skipt um sóknarlínu. Kjartan Henry Finnbogason leikur sinn sjötta A-landsleik og spilar við hlið Jóns Daða Böðvarssonar.

Byrjunarlið Íslands:
Ögmundur Kristinsson (m)

Birkir Már Sævarsson
Ragnar Sigurðsson
Sverrir Ingi Ingason
Hörður Björgvin Magnússon

Rúrik Gíslason
Aron Einar Gunnarsson (f)
Ólafur Ingi Skúlason
Aron Sigurðarson

Jón Daði Böðvarsson
Kjartan Henry Finnbogason

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner