Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 29. mars 2024 11:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verður Maldini eftirmaður Ashworth hjá Newcastle?
Mynd: Getty Images

Ítalska goðsögnin Paolo Maldini er orðaður við stöðu yfirmanns fótboltamála hjá Newcastle.


Dan Ashworth er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu en hann var sendur í leyfi í síðasta mánuði en hann vill gjarnan fara til Manchester United.

Maldini er goðsögn hjá AC Milan en hann lék þar allan sinn feril og var síðan tæknilegur ráðgjafi hjá félaginu frá 2018 til 2023 áður en hann var rekinn.

Hugo Viana er einnig orðaður við stöðuna en hann lék með Newcastle frá 2002–2006 en er yfirmaður fótboltamála hjá Sporting í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner