Heimild: Soccerway
Cristiano Ronaldo býst við því að Angel Di Maria sé að fara að gera góða hluti í treyju númer 7 hjá Manchester United.
Ronaldo gerði garðinn frægan hjá Man Utd og var þar í sex sigursæl tímabil áður en hann var seldur til Real Madrid á metfé.
Ronaldo gerði garðinn frægan hjá Man Utd og var þar í sex sigursæl tímabil áður en hann var seldur til Real Madrid á metfé.
Hjá Real áttu Di Maria og Ronaldo gott samstarf og nú hefur Argentínumaðurinn verið keyptur til Englands og tekur hann við gömlu treyju manna á borð við Ronaldo og David Beckham.
,,Þetta er gott fyrir Di Maria. Manchester United er eitt af bestu félagsliðum í heimi, þetta verður gott fyrir hann og ég óska honum góðs gengis," sagði Ronaldo um félagsskiptin.
,,Hann mun standa sig vel hjá Manchester United, hann á allt gott skilið, hann er stórkostlegur leikmaður.
,,Ég sagði við hann að treyju númer 7 fylgir mikil ábyrgð og ég held að hann muni standast ábyrgðina og væntingarnar því hann er magnaður knattspyrnumaður."
Athugasemdir