Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. maí 2015 18:45
Magnús Már Einarsson
Wenger: Höfum sýnt að við erum alvöru lið
Mynd: Getty Images
„Við höfum sýnt að við erum alvöru lið sem getur höndlað pressu," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal sáttur eftir 4-0 sigur á Aston Villa í úrslitum enska bikarsins í dag.

„Ég vil óska leikmönnum, starfsfólkinu og stuðningsmönnum til hamingju. Við erum mjög ánægðir í kvöld."

„Það var erfitt að velja liðið í vikunni. Þegar að liðsandinn er svona góður þá hjálpar það. Ég er mjög stoltur. Félaginu okar gengur vel og ef mér gengur vel persónulega þá er það ennþá betra,"
sagði Wenger sem segist ekki vera á förum.

„Ég á tvö ár eftir af samningi mínum og hef mikið hungur. Ég vil standa mig vel."
Athugasemdir
banner
banner