Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. ágúst 2016 13:30
Elvar Geir Magnússon
Nasri til Sevilla?
Samir Nasri, 29 ára, með knöttinn.
Samir Nasri, 29 ára, með knöttinn.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt enskum fjölmiðlum er Sevilla á Spáni líklegast til að krækja í Samir Nasri frá Manchester City.

Tyrkneska félagið Besiktas hefur lagt allt í sölurnar til að fá Nasri og komu fimm menn frá félaginu á einkaþotu til Englands. Þeir vonuðust til að taka Nasri með sér heim en hann er spenntari fyrir því að fara til Sevilla.

Sevilla er líklegt til að lána úkraínska landsliðsmanninn Yevhen Konoplyanka til Schalke og þar með skapast pláss fyrir Nasri í liðinu.

Sevilla vill fá Nasri lánaðan út tímabilið og er tilbúið að borga hluta af launum hans á meðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner