Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 31. ágúst 2016 17:55
Jóhann Ingi Hafþórsson
Chelsea og PSG búin að semja um kaupverð á David Luiz
Luiz er á leiðinni til Chelsea.
Luiz er á leiðinni til Chelsea.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur staðfest að samkomulag um kaupverð á David Luiz hefur nást á milli enska félagsins og PSG en ekki er búið að staðfesta kaupverð ennþá.

Luiz er kominn til London til að gangast undir læknisskoðun og semja um kaup og kjör.

Chelsea bauð um 30 milljónir punda í Luiz en PSG vildi meira og má því fastlega búast við því að það fari nálægt þeim 50 milljónum sem franska liðið keypti hann á, á sínum tíma.

Luiz spilaði 81 leik fyrir Chelsea og skoraði í þeim fjögur mörk áður en hann skipti yfir til PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner