KDA KDA
 
Aðsendir pistlar
Aðsendir pistlar
Lesendur Fótbolta.net geta sent inn pistla á [email protected]  Fullt nafn verður að vera með pistlinum og ekki er verra ef að mynd af pistlahöfundi fylgir með.
þri 02.ágú 2016 18:00 Aðsendir pistlar
Geðhvörfin bundu enda á drauma mína um atvinnumennsku Ég hef ákveðið að skrifa um minn íþróttaferil því ég finn að það er að verða vitundarvakning um andleg veikindi í landinu og fleiri eru að stíga fram sem mér finnst algjörlega frábært. Ég vona að enn fleiri komi fram í kjölfarið. Margir hafa eflaust spurt sig og aðra af hverju hinir og þessir náðu ekki lengra í íþróttinni sinni. Ég er nokkuð viss um andleg veikindi spili þar oft á tíðum stóra rullu. Það var allavega þannig hjá mér. Það er hægt að gera svo miklu miklu betur innan íþróttahreyfingarinnar að vinna með fólki sem finnur til andlegra veikinda sem byrjar oft þegar það er á unglingsaldri. Það er viðkvæmur aldur og ég upplifði ekki nægilega þekkingu í þessum efnum frá mínum liðum þegar ég var að byrja að veikjast og missa mína getu bæði í fótbolta og körfubolta. Meira »
þri 26.júl 2016 18:30 Aðsendir pistlar
Eru andleg veikindi tabú innan íþróttahreyfingarinnar? Ég hreifst með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta á EM í Frakklandi. Að baki liggur þrotlaus vinna allra sem að liðinu starfa. Við eigum fleiri tæknilega góða fótboltamenn en áður. Það er eitthvað sem segir mér að það sé vel hugsað um andlega þáttinn í kringum landsliðið. Það er verðugt rannsóknarefni fyrir menn um víða veröld að komast til botns í því hvernig 330.000 manna þjóð hafi komist í 8 liða úrslit og slegið út England sanngjarnt. Ætla að fjalla um andleg veikindi innan íþróttahreyfingarinnar- og/eða félaganna. Ekki sem stóra sannleik heldur eins og mín upplifun er í dag og deili reynslu míns knattspyrnuferils. Meira »
fim 04.feb 2016 12:30 Aðsendir pistlar
Liðið „mitt“ Þeir sem þekkja mig vita að ég er vægast sagt knattspyrnuóður. Er þessi týpa af stuðningsmanni sem mætir að horfa á æfingaleiki og æfingarmót í janúar - febrúar þegar knattspyrnan minnir meira á boccia mót á Grund heldur en knattspyrnuna sem boðið er upp á í sjónvarpi landsmanna. Meira »
mán 14.sep 2015 16:36 Aðsendir pistlar
Af svindlurum og sérfræðingum Í gær sunnudag fór fram leikur FH og ÍBV í Kaplakrika. Sá sem hér skrifar mætti að sjálfsögðu á leikinn ásamt dóttur sinni sem er á sjöunda ári. Í leiknum gerðist umdeilt atvik þegar leikmenn ÍBV töldu að Kassim Doumbia, leikmaður FH, hafði handleikið boltann á marklínu. Dómari leiksins sá hins vegar ekkert athugavert og dæmdi ekkert. FH vann að lokum leikinn 3-1. Meira »
fim 10.sep 2015 17:00 Aðsendir pistlar
Er ekki kominn tími á breytingar? Nú þegar knattspyrnuvertíð kvenna er að ljúka þar sem mörg afrek hafa verið unnin og önnur markmið ekki náðst þá er einungis eitt sem liggur á vörum þeirra sem starfa við meistaraflokk í kvennaknattspyrnu. Það er hvernig mótið á að vera byggt upp og nú hefur hver þjálfarinn á eftir öðrum komið og tjáð sína skoðun á þessu fyrirkomulagi. Það er klárt mál að breyta þarf fyrirkomulaginu en hvernig á að gera það og í hverra höndum á það að vera? Ég vil því hvetja KSÍ og félög í íslenskri kvennaknattspyrnu til að setjast niður og finna farsæla lausn á málinu. Meira »
þri 01.sep 2015 13:30 Aðsendir pistlar
Að vera Tólfa á útileikjum Að vera alvöru Tólfa þýðir ekki endilega að maður verði að mæta á alla útileiki. Tólfan virðir það að allir hafa ekki efni á eða möguleika á að komast á útileiki. Mér finnst alveg frábært hvað það eru margir sem að eru að fara til Hollands og sjá sögulegan viðburð. Hvernig sem leikurinn fer er nú þegar búið að skrifa þennan leik í sögubækurnar, aldrei hafa fleiri Íslendingar farið á útileik með íslenska landsliðinu. Meira »
mán 24.ágú 2015 16:15 Aðsendir pistlar
Drullaðu þér í burtu! Við Framarar getum varla verið stoltir af því að fyrirsögnin á þessum pistli er vísun í ummæli þjálfara FRAM og í kjölfarið frétt um þann atburð sem er ein vinsælasta frétt vikunnar. BRAVÓ, tengist þetta eitthvað „ uppbyggingarstarfinu fræga „ ég bara spyr? Meira »
fim 20.ágú 2015 10:15 Aðsendir pistlar
Hæ þú! - Vertu með í fjörinu Ertu Íslendingur? Eða styður þú íslensku landsliðin? Ertu Tólfa?, þristur, nía eða heitir þú kannski bara Guðný? Meira »
þri 18.ágú 2015 16:30 Aðsendir pistlar
Hugleiðingar um stefnu KSÍ varðandi kvenna knattspyrnu Þegar ég sit við tölvuna núna 18.ágúst, fimm dögum eftir að tímabilinu hjá mínu liði lauk, var þjálfari mfl kvenna hjá Haukum. Get ég ekki annað en hugsað af hverju í ósköpunum er tímabilinu lokið fyrir miðjan ágúst? Stelpurnar æfðu frá október til þess að fá að spila nákvæmlega 10 leiki í deild, sem er náttúrulega bara fáránlegt. Meira »
mið 05.ágú 2015 17:15 Aðsendir pistlar
Sálfræði: Einkenni og úrræði sem mikilvægt er að þekkja Undanfarin misseri hafa hugrakkir íþróttamenn opinberað sig og greint frá eigin reynslu af meðal annars kvíða og þunglyndi. Það er ekki auðvelt skref að stíga fram og opna sig um líðan sem þeir hafa lengi falið en jafnframt koma þeir af stað umræðu og hjálpa þar af leiðandi öðrum í svipuðum sporum. Í framhaldinu vaknar íþróttahreyfingin vonandi með því að auka fræðslu og aðkomu sérfræðinga fyrir íþróttafólk, þjálfara og aðstandendur því sálræn vanlíðan og óþægindi í íþróttum eru nokkuð algeng. Meira »