Tomiyasu samdi við Arsenal um starfslok (Staðfest)
Arsenal er búið að ná samkomulagi við japanska varnarmanninn Takehiro Tomiyasu um samningslok, en leikmaðurinn átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25113 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Arsenal er búið að ná samkomulagi við japanska varnarmanninn Takehiro Tomiyasu um samningslok, en leikmaðurinn átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Aaron Ramsey hefur verið kynntur sem leikmaður mexíkóska liðsins Pumas UNAM.
Demarai Gray er genginn til liðs við Birmingham frá sádi-arabíska liðinu Al-Ettifaq en hann skrifar undir þriggja ára samning. Gray er 29 ára og er kominn aftur á heimaslóðir. Hann hóf ferilinn hjá liðinu þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2013.
Miðjumaðurinn Samuele Ricci er genginn til liðs við AC Milan frá Torino. Hann skrifaði undir samning til ársins 2029 en félagið á möguleika á að framlengja hann um eitt ár til víðbótar. Kaupverðið er talið vera um 25 milljónir evra.
Kjartan Már Kjartansson er genginn til liðs við Aberdeen í Skotlandi frá Stjörnunni. Kjartan er tólfti leikmaðurinn sem Stjarnan selur á innan við fimm árum. Hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Tammy Abraham, fyrrum framherji Chelsea, er genginn í raðir tyrkneska félagsins Besiktas. Hann kemur á eins árs lánssamningi frá ítalska félaginu Roma. Besiktas greiðir tvær milljónir evra í lánsfé og þarf svo að kaupa hann á 13 milljónir evra. Heildarupphæðin er því 15 milljónir evra en sú upphæð gæti mögulega hækkað um tvær milljónir evra með framtíðar bónusum.
Keith Andrews, sem var sérfræðingur í föstum leikatriðum hjá Brentford, var á dögunum ráðinn stjóri liðsins eftir að Thomas Frank hélt til Tottenham. Brentford tilkynnti í dag um fyrstu kaup félagsins eftir ráðninguna á Andrews. Antoni Milambo er mættur til Brentford, hann er keyptur frá hollenska félaginu Feyenoord.
Arnór Smárason, fyrrum leikmaður Hammarby, hefur verið ráðinn íþróttastjóri kvennaliðs sænska félagsins. <i>„Hammarby er á spennandi vegferð og ég er mjög ánægður að geta tekið þátt og lagt mitt af mörkum,"</I> segir Skagamaðurinn í tilkynningu félagsins.
Máni Berg Ellertsson hefur fengið félagaskipti frá Kára til Grindavíkur og má taka þátt í nágrannaslag Grindavíkur gegn Njarðvík í kvöld. Máni Berg hefur skrifað undir samning við Grindavík sem gildir út tímabilið 2027. Máni Berg er miðjumaður sem uppalinn er hjá ÍA. Hann er fæddur árið 2007 og skipti yfir í Kára fyrir síðasta tímabil. Þess má geta að hann er einnig ansi öflugur badmintonspilari.
Sádi-arabíska félagið Al Hilal hefur fengið marokkóska framherjann Abderrazak Hamdallah á láni frá Al-Shabab út HM félagsliða.
Ganamaðurinn Kamaldeen Sulemana mun leika á Ítalíu næstu árin en hann er genginn í raðir Atalanta frá Southampton.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur fundið sér nýtt félag í Mið-Austurlöndunum en hann er mættur til Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur samið við franska miðvörðinn Olivier Boscagli en hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við PSV rann út á dögunum.
Sunderland hefur gengið frá kaupum á senegalska miðjumanninum Habib Diarra en hann er keyptur frá Strasbourg fyrir um 30 milljónir punda, sem er félagsmet. Þessi 21 árs leikmaður skoraði í landsleik gegn Englandi í júní en hann hefur skrifað undir fimm ára samning við Sunderland.
Burnley hefur fengið franska kantmanninn Loum Tchaouna frá Lazio. Tchaouna, sem er 21 árs gamall, hjálpaði Frakklandi að komast í undanúrslit EM U21 í sumar.
Chelsea hefur keypt Brasilíumanninn Joao Pedro fyrir 60 milljónir punda og hann gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið í 8-liða úrslitum HM félagsliða um komandi helgi. Chelsea á leik gegn Palmeiras.
Liverpool tilkynnti um komu tveggja þjálfara í þjálfarateymi Arne Slot í dag. Giovanni van Bronckhorst kemur inn sem aðstoðarþjálfari Slot, en sú staða var laus eftir að John Heitinga var ráðinn til Ajax í vor. Van Bronckhorst er fyrrum landsliðsfyrirliði Hollands og lék m.a. með Barcelona og Arsenal á sínum ferli. Hann var síðast aðalþjálfari Besiktas en var látinn fara í vetur.
Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur keypt varnarmanninn Jarell Quansah frá Liverpool og kaupverðið gæti náð 35 milljónum punda. Þessi 22 ára leikmaður fékk ekki mörg tækifæri hjá Liverpool undir stjórn Arne Slot á síðasta tímabili. Miðvörðurinn er uppalinn hjá Liverpool og byrjaði fjóra úrvalsdeildarleiki á síðasta tímabili, alls fékk hann þrettán byrjunarliðsleiki í öllum keppnum.
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið keypt til Inter Milan frá Bayern München. Ítalska félagið staðfestir þetta núna í morgunsárið.
Wrexham heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Championship deildinni á næstu leiktíð. Félagið hefur nælt í velska markvörðinn Danny Ward en hann er fæddur í Wrexham. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.