Flick áfram hjá Barcelona (Staðfest) - Gerði samning til 2027
Þýski þjálfarinn Hansi Flick hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2027.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25119 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þýski þjálfarinn Hansi Flick hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2027.
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur skrifað undir samning við Angel City í Bandaríkjunum. Félagið greindi frá þessu núna rétt áðan. Sveindís hefur síðustu ár spilað með Wolfsburg í Þýskalandi en hún yfirgaf félagið á dögunum eftir að samningur hennar rann út.
Kvennalið ÍR er búið að styrkja hópinn sinn til muna fyrir átök sumarsins. Eftir að hafa gert nýja samninga við einhverja leikmenn liðsins eru tíu nýir leikmenn búnir að bætast við.
Varnarmaðurinn þaulreyndi Hörður Björgvin Magnússon verður samningslaus í sumar. Gríska stórveldið Panathinaikos staðfestir þetta.
Miðjumaðurinn Abdoulaye Doucoure mun í sumar yfirgefa Everton þegar samningur hans við félagið rennur út. Doucoure fékk áframhaldandi samningstilboð frá Everton en ákvað að hafna því.
Franski sóknartengiliðurinn Rayan Cherki mun yfirgefa Lyon eftir þetta tímabil en þetta staðfesti hann við blaðamenn eftir síðasta leik liðsins í frönsku deildinni í gær.
Enski þjálfarinn Will Still er hættur með franska liðið Lens en þetta staðfesti hann á blaðamannafundi eftir lokaumferðina í frönsku deildinni í gær.
Halldór Páll Geirsson, sem fékk félagaskipti í ÍBV í vetur og spilaði með liðinu í deildabikarnum, hefur fengið félagaskipti aftur í KFS og getur verið til taks í 3. deildinni í sumar. KFS er í 4. deild og er nú með þrjá markmenn sem geta barist um stöðuna. Dagur Einarsson fékk að líta rauða spjaldið í fyrstu umferðinni og inn á kom Guðjón Orri Sigurjónsson. Núna bætist Halldór Páll við flóruna.
Völsungur hefur fengið öflugan markmann að láni frá nágrönnum sínum í Þór/KA því Harpa Jóhannsdóttir er komin með leikheimild með Völsungi. Harpa er fædd árið 1998 og á að baki 132 KSÍ leiki og varði mark Þórs/KA í bikarleiknum gegn KR um síðustu helgi. Hún lék í 11 af 23 leikjum Þórs/KA í Bestu deildinni í fyrra og á alls að baki 65 leiki í efstu deild.
Dean Huijsen, varnarmaður Bournemouth, mun í sumar ganga í raðir Real Madrid. Frá þessu greinir spænska félagið á samfélagsmiðlum sínum. Hann mun geta spilað með Real á HM félagsliða í sumar. Real virkjaði riftunarákvæði í samningi Huijsen nýlega og mun greiða 50 milljónir punda í þremur greiðslum á næstu tveimur árum. Bournemouth greiddi 12 milljónir punda til að fá hann frá Juventus síðasta sumar. Huijsen er spænskur landsliðsmaður sem fæddur er í Hollandi. Hann var einn heitasti bitinn á markaðnum en nú er ljóst að hann gengur í raðir Real eftir að tímabilinu á Englandi lýkur. Newcastle, Chelsea, Liverpool og Arsenal voru á meðal félaga sem horfðu til Huijsen.
Stokkseyri hefur fengið mjög áhugaverðan liðsstyrk, og verulega öflugan ef það eru ennþá töfrar í takkaskónum, því markavélin Hrvoje Tokic er genginn í raðir félagsins. Hann kemur í Stokkseyri frá grönnunum í Árborg. Tokic verður 35 ára í sumar, hann er framherji sem hefur skorað 136 mörk í 174 KSÍ leikjum. Hann spilaði ekkert í fyrra en sumarið 2023 skoraði hann tíu mörk í átta leikjum í 4. deild 2023. Á sínum tíma lék hann með Víkingi Ólafsvík og Breiðabliki í efstu deild og skoraði þá 14 mörk í 42 leikjum.
Sænski landsliðsmaðurinn Daniel Svensson er genginn alfarið í raðir Borussia Dortmund frá danska félaginu Nordsjælland, en hann hefur eytt síðustu mánuðum á láni hjá Dortmund.
Franska A-deildarfélagið Mónakó hefur staðfest félagaskipti Eric Dier frá Bayern München en hann mun formlega ganga í raðir félagsins í næsta mánuði.
Enska Championship félagið Watford er búið að ráða inn nýjan þjálfara eftir að Tom Cleverley var rekinn fyrir rúmri viku síðan.
Það er gósentíð fótboltafíkilsins. Íslenski boltinn er kominn á fulla ferð og úrslit að skýrast í deildum Evrópu. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Brasilíska fótboltasambandið hefur staðfest að Carlo Ancelotti taki við landsliði þjóðarinnar. Hann tekur til starfa þann 26. maí. Þessi 65 ára stjóri hættir með Real Madrid og mun Xabi Alonso taka við á Bernabeu leikvangnum. Ancelotti skráir sig á spjöld sögunnar sem fyrsti erlendi þjálfari brasilíska liðsins og mun taka við stjórnartaumunum fyrir leiki gegn Ekvador og Paragvæ í undankeppni HM sem fara fram í júní.
Xabi Alonso er að hætta sem þjálfari Bayer Leverkusen en þetta staðfesti hann á fréttamannafundi rétt í þessu. <i>„Félagið og ég höfum náð samkomulagi um að þeir tveir leikir sem eru eftir á tímabilinu verði mínir síðustu hjá Bayer Leverkusen. Nú er rétti tímapunkturinn,"</i> segir Alonso sem vill þó ekki ræða framtíðina að svo stöddu. Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann sé með munnlegt samkomulag um að taka við Real Madrid.
Wolfsburg tilkynnti í dag að markmaðurinn Anneke Borbe, sóknarmaðurinn Sveindís Jane Jónsdóttir og varnarmaðurinn Lynn Wilms myndu allar yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út 30. júní í sumar.
ÍA hefur fengið sóknarmanninn Sebastian Sigurðsson Bornachera í sínar raðir frá FH. Sebastian er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki fyrir U15 landsliðið. Hann var í mars valinn í æfingahóp U16 landsliðsins. Hann er uppalinn hjá Haukum en skipti yfir í FH í fyrra. Hann er núna kominn í ÍA.
Pétur Bjarnason hefur fengið félagaskipti í KFK og mun spila með liðinu á láni frá Vestra í sumar. Pétur er framherji sem fæddur er árið 1997 og skoraði þrjú mörk í Bestu deildinni á síðasta tímabili. Hann á að baki 272 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 92 mörk, þar af níu í efstu deild. Hann hefur til þessa aldrei spilað neðar en í C-deild.