Norsk markavél í Aftureldingu (Staðfest)
Afturelding hefur staðfest komu norska framherjans Joacim Holtan en hann semur út 2026.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Afturelding hefur staðfest komu norska framherjans Joacim Holtan en hann semur út 2026.
Ashley Cole, fyrrum leikmaður Arsenal, Chelsea og enska landsliðsins, er tekinn við ítalska B-deildarliðinu Cesena, en þetta verður hans fyrsta starf sem aðalþjálfari.
Grótta hefur fengið enska framherjann Alexandria Madden til liðs við félagsins frá litháenska félaginu Zalgiris.
Spánverjinn Joan Laporta var endurkjörinn forseti Spánarmeistara Barcelona í kvöld en aftur hafði hann betur gegn Victor Font. Þetta kemur fram í tilkynningu Börsunga.
Lengjudeildarlið Njarðvíkur hefur sótt hægri bakvörðinn Stefán Gísla Stefánsson frá Val en hann kemur til félagsins á lánssamningi.
Reece James, fyrirliði karlaliðs Chelsea, skrifaði undir nýjan samning í gær sem gildir til sumarsins 2032.
Liam Rosenior er mjög ánægður með að fyrirliðinn og lykilmaðurinn Reece James sé búinn að skrifa undir nýjan samning við Chelsea.
Reece James hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við Chelea. Hann er nú samningsbundinn félaginu fram á sumarið 2032. James, sem er fyrirliði Chelsea, er 26 ára og var áður samningsbundinn til 2028. Hann kom inn í akademíu Chelsea árið 2006 og hefur því alla sína fótboltatíð verið hjá félaginu. James er í grunninn hægri bakvörður en hann hefur talsvert spilað sem djúpur miðjumaður á þessu tímabili. Hann er lykilmaður í liðinu og sem betur fer fyrir Chelsea hefur hann náð að halda sér þokkalega heilum á þessu tímabili eftir nokkur erfið tímabil meiðslalega á undan.
Samuel Kroon er genginn í raðir KA og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Hann er annar leikmaðurinn sem KA tilkynnir í dag því í morgun var opinberað að Danijel Dejan Djuric væri búinn að gera þriggja ára samning við félagið.
KA hefur staðfest þriggja ára samning við Danijel Dejan Djuric. KA var í baráttu við Breiðablik um undirskrift Danijels og í gær valdi hann KA. Fjallað hefur verið um að KA greiði um 18 milljónir króna fyrir Danijel sem er 23 ára sóknarmaður, en það er óstaðfest upphæð.
Vestri hefur styrkt sig fyrir baráttuna í 2. deild kvenna en liðið hefur nælt í bandarískan framherja. Hún heitir Raniyah Burton en hún kemur til liðsins úr Washington State háskólanum. Í tilkynningu Vestra segir að hún sé kraftmikill framherji og sé með mikla orku og hungur í að ná árangri.
Keflvíkingar eru búnir að semja við sænska markmanninn Mirsad Basic. Basic kemur væntanlega til þess að veita Ásgeiri Orra Magnússyni samkeppni um aðalmarkmannsstöðuna. Keflvíkingar hafa verið í leit að markmanni undanfarnar vikur efitr að Sindri Kristinn Ólafsson, sem var samningsbundinn félaginu, óskaði eftir því að fá að flytja til Svíþjóðar.
Reynir Sandgerði er búið að semja við þrjá leikmenn um að leika með liðinu á komandi misserum.
FHL er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna eftir fall úr Bestu deildinni í fyrra og hörmulegt gengi í Lengjubikarnum í vetur.
Jónas Grani Garðarsson hefur verið ráðinn inn í læknateymið hjá norska stórveldinu Rosenborg, en Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Vestri á Ísafirði er búinn að krækja í sóknartengiliðinn öfluga Ibrahima Balde sem gengur aftur til liðs við félagið eftir eins árs fjarveru.
Njarðvík var að krækja í 26 ára miðjumann sem er með reynslu að baki á háu gæðastigi.
Njarðvík var að krækja í 26 ára miðjumann sem lék síðast með Dubai City FC í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Markvörðurinn öflugi Sindri Kristinn Ólafsson er búinn að kveðja Keflavík og íslenska boltann.
Alexia Marin Czerwien, oftast kölluð Lexi, er gengin í raðir Þróttar og mun spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar. Lexi er bandarískur miðjumaður, fædd 2002, sem kemur til Þróttar frá FHL í tilkynningu Þróttar segir að Lexi sé gríðarlega spennt fyrir komandi sumri. Hún skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum með FHL í fyrra. Hún er þriðji leikmaðurinn sem Þróttur fær frá FHL í vetur. Næsti leikur Þróttar er einmitt útileikur gegn FHL í Lengjubikarnum á laugardag. Íslandsmótið hefst svo í lok apríl.