Vestri á Ísafirði er búinn að krækja í sóknartengiliðinn öfluga Ibrahima Balde sem gengur aftur til liðs við félagið eftir eins árs fjarveru.
Ibrahima reyndi fyrir sér með Þór í fyrra og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina með því að skora 8 mörk í 20 leikjum. Hann var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni og skoraði þar að auki fjögur mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarnum.
Ibrahima er 30 ára gamall og gerir þriggja ára samning við Vestra eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liðinu tímabilin 2023 og 2024.
Hann kýs að fara til Vestra frekar en að reyna aftur fyrir sér í Bestu deildinni, í þetta skiptið með Þórsurum.
„Þetta er frábær styrking í leikmannahóp okkar, styrkur og gæði Balde eru óumdeild. Velkominn heim, Ibrahima Balde," segir í tilkynningu frá Vestra.
Athugasemdir


