Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   mið 11. mars 2026 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Lengjudeildin
Mynd: Njarðvík / Aðsend
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvík var að krækja í 26 ára miðjumann sem er með reynslu að baki á háu gæðastigi.

Sá heitir Leandro Fernandes da Cunha og lék síðast með Dubai City FC í toppbaráttunni í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en fyrir það lék hann með unglingaliðum PSV Eindhoven og Juventus og var lykilmaður upp yngri landslið Hollands. Hann var samherji Alberts Guðmundssonar hjá unglingaliði PSV.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og hlakka mikið til að vinna deildina með Njarðvík," sagði Leandro sem var svo spurður hvers vegna hann hafi valið að koma til Íslands sem næsta skref á ferlinum.

„Ég var í Dúbaí og þjálfari Njarðvíkur (Davíð Smári Lamude) heyrði í mér. Hann veitti mér innblástur og sannfærði mig um að kýla á þetta. Mér líst vel á þær hugmyndir sem hann hefur og hvernig hann vill spila fótbolta. Svo held ég að það sé betra að spila í Evrópu á mínum aldri.

„Ég átti jákvæð samtöl við þjálfarann og forsetann og tel þetta hafa verið góða ákvörðun."


Leandro var svo spurður hvernig leikmaður hann sé og hvort hann búist við að vera í Njarðvík til langs tíma.

„Þið munuð komast að því bráðlega. Ég er teknískur leikmaður og vil vinna hvern einasta leik. Markmiðið er að vinna deildina með Njarðvík.

„Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið að spila hérna en ég stefni alltaf hærra. Núna beinist öll mín einbeiting að því að verða meistari með Njarðvík og hjálpa liðinu eins mikið og ég get."


En veit hann eitthvað um Ísland?

„Gamli liðsfélagi minn Albert Guðmundsson hefur eitthvað sagt mér frá landinu. Ég veit að þetta er mjög öruggt land eins og Holland og það er fylgst vel með fótboltanum hérna. Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri."

   11.03.2026 18:55
Leandro Fernandes í Njarðvík (Staðfest)

Slapp
banner
banner