Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þriðji leikmaðurinn sem Þróttur fær frá Austurlandi (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Þróttur
Alexia Marin Czerwien, oftast kölluð Lexi, er gengin í raðir Þróttar og mun spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar.

Lexi er bandarískur miðjumaður, fædd 2002, sem kemur til Þróttar frá FHL í tilkynningu Þróttar segir að Lexi sé gríðarlega spennt fyrir komandi sumri.

Hún skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum með FHL í fyrra. Hún er þriðji leikmaðurinn sem Þróttur fær frá FHL í vetur. Næsti leikur Þróttar er einmitt útileikur gegn FHL í Lengjubikarnum á laugardag.

Íslandsmótið hefst svo í lok apríl.

Komnar
Maddie Ditta frá Bandaríkjunum
Björg Gunnlaugsdóttir frá FHL
Rósey Björgvinsdóttir frá FHL
Lexi Czerwien frá FHL
Kristrún Ýr Holm frá Keflavík

Farnar
Lea Björt Kristjánsdóttir í Grindavík/Njarðvík
Katie Cousins til Portúgals
Sierra Lelii hætt
Klara Mist Karlsdóttir í HK



Athugasemdir
banner
banner