Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 10:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflvíkingar búnir að finna mann í stað Sindra (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Keflvíkingar eru búnir að semja við sænska markmanninn Mirsad Basic.

Basic kemur væntanlega til þess að veita Ásgeiri Orra Magnússyni samkeppni um aðalmarkmannsstöðuna.

Keflvíkingar hafa verið í leit að markmanni undanfarnar vikur efitr að Sindri Kristinn Ólafsson, sem var samningsbundinn félaginu, óskaði eftir því að fá að flytja til Svíþjóðar.

Basic er tvítugur, hefur verið á mála hjá Öster í Svíþjóð og leikið í neðri deildunum.

„Mirsad Basic hefur skrifað undir samning við Keflavík. Mirsad er tvítugur sænskur markvörður sem síðast var á mála hjá Öster í heimalandi sínu. Mirsad kemur strax inn í hópinn sem heldur í æfingaferð í dag. Við bjóðum Mirsad velkominn til Keflavíkur!" segir í tilkynningu Keflavíkur.


Athugasemdir
banner