Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 21:29
Ívan Guðjón Baldursson
Jónas Grani ráðinn til Rosenborg (Staðfest)
Jónas Grani þegar hann var hjá Kortrijk í Belgíu. Freyr Alexandersson þjálfaði liðið.
Jónas Grani þegar hann var hjá Kortrijk í Belgíu. Freyr Alexandersson þjálfaði liðið.
Mynd: Kortrijk
Jónas Grani Garðarsson hefur verið ráðinn inn í læknateymið hjá norska stórveldinu Rosenborg, en Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.

Jónas Grani, 52 ára, varð þrefaldur Íslandsmeistari með FH á ferli sínum sem leikmaður og hefur starfað víða á ferli sínum sem sjúkraþjálfari.

„Ég bætist við öflugan hóp af sjúkraþjálfurum og er mjög ánægður að vera kominn hingað til sigursælasta félags í sögu Noregs. Þetta er mjög stórt félag, allir á Íslandi og í Evrópu þekkja Rosenborg og sögu félagsins. Það er mjög gott að vera kominn hingað, aðstæðurnar eru frábærar og ég hlakka til að hefja störf," sagði Jónas Grani við undirskriftina.

Alfreð Finnbogason tjáði sig einnig um ráðninguna.

„Við erum ánægð að fá Jónas inn í teymið hérna hjá Rosenborg. Hann býr yfir mikilli reynslu úr sjúkraþjálfun og er með bakgrunn sem fótboltamaður sem er alltaf hjálpsamlegt í þessu starfi. Okkur hlakkar til samstarfsins," sagði Alfreð.

   28.07.2025 09:07
Tveggja Turna Tal - Jónas Grani Garðarsson

Athugasemdir
banner
banner